12. nóvember 2021 12:47 (1 lesandi hefur sagt álit sitt.)
Árshátíð
Stafir og skilaboð
Árshátíð Stórutjarnaskóla var haldin fimmtudagskvöldið 11. nóvember. Sýnd voru verkin Heimur stafanna og Skilaboðaskjóðan. Óhætt er að segja að vel hafi tekist til. Nemendur stóðu sig með stakri prýði og voru skólanum sínum til sóma. Almenn gleði var meðal nemenda bæði á meðan á æfingum stóð og á sýningarkvöldið. Starfsfólk skólans hefur einnig lagt sitt að mörkum við að aðstoða nemendur í búningagerð, við sviðsmynd og við æfingar. Þegar allir, nemendur, starfsfólk og foreldrar vinna saman eins og gerist í árhátíðarundirbúningi, verður útkoman alltaf gefandi og skemmtileg. Þó svo að kvíði og stress geri vart við sig hjá einhverjum stoppar það ekki nemendur í að koma flóknum og erfiðum texta til skila og syngja að innlifun fyrir fullu húsi. Óhætt er að segja að allir séu himinlifandi með að það skuli hafa tekist að halda árshátíð á þessum óvissu tímum, þrátt fyrir að veislan bíði betri tíma. Myndir sem gaman er að skoða með fjölskyldunni og rifja upp atriði er að finna „hér“.
Árshátíð er alltaf Hátíð. Ég fylgist með hér á síðunni. Ég nýt þess að skoða myndir af krökkunum "mínum". Ég komst ekki á sýninguna en yndislegt að geta skoðað myndirnar, þetta var virkileg flott hjá ykkur öllum. Bestu kveðjur Heiða K.