Forsíða
Á döfinni
Um skólann
Stefna Stórutjarnaskóla
Um breytt námsmat
Leikskólinn
Grunnskólinn
Tónlistardeild
Foreldrafélagið
 
Námsvísar
Stundaskrár
Skóladagatal
Þróunarstarf
 
Nemendur
Starfsfólk
Matseðill
Grenndarvitund
Umhverfi og lýðheilsa
 
Greiðslur til skólans
Sundlaug
Símanúmer
Vefpóstur
 
Önnur starfsemi
Eyðublöð


 
5. janúar 2021 09:42

Öðruvísi dagatal

Í desember tóku nemendur 1. - 3. bekkjar að öðru sinni þátt í “öðruvísi dagatali” sem er verkefni á vegum SOS Barnaþorpanna. Að þessu sinni tóku nemendur 4. - 6. bekkjar einnig þátt. Nemendur horfðu á stutt myndband á hverjum morgni. Myndböndin fjölluðu um börn og fjölskyldur þeirra, sem þegið hafa aðstoð Barnaþorpanna. SOS Barnaþorp eru starfrækt víða um lönd og styðja fjölskyldur sem lent hafa í ýmis konar erfiðleikum s.s. fátækt, stríði, náttúruhamförum eða ástvinamissi.

 

Myndböndunum fylgdi stafaþraut sem nemendur leystu og fundu lausnarorðið “Öll börn eiga rétt á öruggu heimili” sem við svo sendum í tölvupósti til samtakanna. Það á svo eftir að koma í ljós hvort við verðum dregin úr pottinum.
Hluti af verkefninu fólst í því að nemendur söfnuðu peningi með því að gera góðverk heima hjá sér og fá greitt fyrir. Þátttaka í því var ekki skylda en þeir sem tóku þátt í söfnuninni stóðu sig með prýði og söfnuðu hóparnir samtals 25.500 krónum. Upphæðinni hefur verið komið til skila til fræðslufulltrúa SOS Barnaþorpanna á Íslandi.

 
Verkefnið var uppspretta mikilla umræðna um réttindi og aðstæður barna víðsvegar í heiminum. Við í stofu eitt þökkum jákvæð viðbrögð foreldra og gott samstarf. Nemendur eru sammála um mikilvægi verkefnisins og hafa ákveðið að taka einnig þátt fyrir næstu jól. 


Til baka



SKRIFAÐU ÁLIT ÞITT

Fyrirsögn

Álit

Hvað er 2+3?

Undirskrift 



SENDA ÞESSA FRÉTT Í TÖLVUPÓSTI

Netföng viðtakenda:


  

Skilaboð

Hvað er 2+3?

Nafn sendanda:


yfirlit frétta


SMÞMFFL
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
2345678
Desember 2021

12. ágú. 2022

Skólasetning Stórutjarnaskóla verður mánudaginn 22. ágúst kl. 17:00


2. jún. 2022

Sumarfrí


2. jún. 2022

Sundlaug og bókasafn


27. maí 2022

Vordagar


18. maí 2022

Í mörgu að snúast hjá elstu nemendunum


16. maí 2022

Afmælishátíð


16. maí 2022

Umhverfis- og lýðheilsuþing og vortónleikar


22. apr. 2022

Gleðilegt sumar