Ósk Helgadóttir skólaliði og varaformaður Framsýnar stéttarfélags flutti stutta þakkarræðu þar sem hún sagði frá því að hljómsveitin Tjarnastrengir hafi flutt nokkur lög á 1. maí hátíðarhöldum á Húsavík. Ósk afhenti styrk fyrir hönd Framsýnar að upphæð 100.000 kr. til fiðlukaupa fyrir tónlistardeild skólans. Hljómsveitin Tjarnastrengir samanstendur af fimm fiðlunemendum og einum píanónemenda og varð til vegna þátttöku nemenda á Nótunni 2023 Uppskeruhátíð tónlistarskólanna. Hátíðin var haldin í Hörpunni 19. mars. Þess má geta að einnig barst tónlistardeildinni óvænt gjöf frá tónleikagestum að upphæð 30.000 kr. og færum við gefendum bestu þakkir.
Eftir tónleikana var hefðbundin kaffisala með glæsilegum veitingum sem nemendur 8. og 9. bekkjar ásamt foreldrum stóðu fyrir. Allur ágóði sölunnar fer í ferðasjóð nemenda.
Nemendur stóðu sig allir með prýði og voru til fyrirmyndar. Við þökkum öllum sem fram komu og þeim sem komu að undirbúningi fyrir þeirra framlag. Myndir hér.
Myndir: jr |