Mánudaginn 17. maí var skipulögđ útikennsla fyrir alla nemendur Stórutjarnaskóla. Ađ ţessu sinni fengu ţeir ađ spreyta sig á ratleik sem gekk út á ađ finna allt ađ átta örnefni í umhverfi skólans. Nemendum var skipt í 9 hópa og hver hópur fékk í hendur upplýsingar í ákveđnu litakerfi um ţá stađi sem átti ađ finna. Fyrr í vetur, á degi umhverfisins, var fariđ í örnefnaskođun og nú var meiningin ađ nemendur hefđu ţá frćđslu til ađ byggja á. Stađirnir sem nemendur ţurftu ađ finna voru: Startjörn, Fiskilćkur, Bćjartjörn, Startjarnarmór, Langimelur, Garđabolli, Níphóll og Leirtjörn.
Ţetta gekk mjög vel og athyglisvert var ađ fylgjast međ ţví hvernig hóparnir skipulögđu framkvćmdir, hver og einn. Enda var fyrsti hópurinn ekki nema um 30 mínútur ađ hafa upp á átta örnefnaveifum og eina ţeirra var ađ finna upp á Níphól. Síđan ţurfti hver hópur ađ skila átta miđum í öruggar hendur viđ heimkomuna.
Ekki var laust viđ ađ ţeir sem harđast lögđu ađ sér vćru dasađir og sveittir á eftir, á međan ađrir fóru sér hćgar og áttu sína orku enn ađ mestu eftir viđ heimkomuna.
Fleira fannst en örnefnaveifurnar, t.d. varđ ein grágćs á vegi nemenda og hún lét ekkert raska sinni ró - fylgdist af yfirvegun međ hamagangi nemenda. Myndirnar tala sínu máli.