Forsíða
Á döfinni
Um skólann
Stefna Stórutjarnaskóla
Um breytt námsmat
Leikskólinn
Grunnskólinn
Tónlistardeild
Foreldrafélagið
 
Námsvísar
Stundaskrár
Skóladagatal
Þróunarstarf
 
Nemendur
Starfsfólk
Matseðill
Grenndarvitund
Umhverfi og lýðheilsa
 
Greiðslur til skólans
Sundlaug
Símanúmer
Vefpóstur
 
Önnur starfsemi
Eyðublöð


 
20. maí 2023 07:02

Vortónleikar Stórutjarnaskóla

Vortónleikar voru haldnir 17. maí og var sérstaklega vel mætt. Efnisskrá var fjölbreytt og skemmtileg þar sem flestir nemendur skólans komu fram. Marika var kynnir og samkvæmt hefðinni kynnti hún nemendur með nafni og bæjarnafni. Einnig voru þau Ármann nemendum til aðstoðar við flutning.

 

Ósk Helgadóttir skólaliði og varaformaður Framsýnar stéttarfélags flutti stutta þakkarræðu þar sem hún sagði frá því að hljómsveitin Tjarnastrengir hafi flutt nokkur lög á 1. maí hátíðarhöldum á Húsavík. Ósk afhenti styrk fyrir hönd Framsýnar að upphæð 100.000 kr. til fiðlukaupa fyrir tónlistardeild skólans.  Hljómsveitin Tjarnastrengir samanstendur af fimm fiðlunemendum og einum píanónemenda og varð til vegna þátttöku nemenda á Nótunni 2023 Uppskeruhátíð tónlistarskólanna. Hátíðin var haldin í Hörpunni 19. mars. Þess má geta að einnig barst tónlistardeildinni óvænt gjöf frá tónleikagestum að upphæð 30.000 kr. og færum við gefendum bestu þakkir.

 
Eftir tónleikana var hefðbundin kaffisala með glæsilegum veitingum sem nemendur 8. og 9. bekkjar ásamt foreldrum stóðu fyrir. Allur ágóði sölunnar fer í ferðasjóð nemenda.

 
Nemendur stóðu sig allir með prýði og voru til fyrirmyndar. Við þökkum öllum sem fram komu og þeim sem komu að undirbúningi fyrir þeirra framlag. Myndir hér.

 

Myndir: jr


Til baka



SKRIFAÐU ÁLIT ÞITT

Fyrirsögn

Álit

Hvað er 2+3?

Undirskrift 



SENDA ÞESSA FRÉTT Í TÖLVUPÓSTI

Netföng viðtakenda:


  

Skilaboð

Hvað er 2+3?

Nafn sendanda:


yfirlit frétta


SMÞMFFL
272829303112
3456789
10111213141516
17181920212223
24252627282930
1234567
September 2023

20. maí 2023

Vortónleikar Stórutjarnaskóla


19. maí 2023

Innritun í tónlistardeild


27. apr. 2023

Talað við afreksfólk


27. apr. 2023

Umhverfis- og lýðheilsuþing


13. apr. 2023

Sjaldgæfur fugl týnir lífinu


13. apr. 2023

Á skíðum


13. apr. 2023

Öskudagsskemmtanir


28. mar. 2023

Stórutjarnaskóli hlaut Umhverfisverðlaun Þingeyjarsveitar