Hver sá nemandi sem kýs að starfa utan skólans í vorþemaviku, heima eða hjá öðrum, verður að gera starfssamning við ákveðinn ábyrgðarmann á heimilinu, sem fylgist með að nemandinn vinni sér og öðrum gagn þessa daga og skrifi dagbókina sína skilmerkilega. Þetta er gert til að tryggja að vorþemavikan skili því sem henni er ætlað, en verði ekki eingöngu frítími þeirra sem ekki koma til skóla.
Þeir nemendur sem ekki eru nauðsynlegir heima fyrir koma hins vegar í skólann í vorþemaviku og dvelja þar við vorstörf af ýmsu tagi. Skólatími í vorþemaviku verður alla daga frá kl 8:30 - 14:00, (hjá öllum bekkjum). Föstudaginn 21. og þriðjudaginn 25. maí, ljúkum við þó skóla um kl 13:00. Samkvæmt venju lýkur þemavikunni og þar með skóladögum nemenda með grillveislu þann 25. maí.
Síðasti dagur nemenda í skólanum þetta skólaárið verður þriðjudagurinn 25. maí. Það er jafnframt síðasti starfsdagur leikskólans. Stefnt er að skólaslitum þriðjudagskvöldið 1. júní. Skólaslit verða nánar auglýst síðar, m.a. á heimasíðu skólans og í Hlaupastelpunni.
Þá viljum við einnig minna nemendur og foreldra á að nauðsynlegt er að skila öllum bókum, bæði námsbókum og bókum af bókasafni, fyrir skólalok.
Til að auðvelda okkur skipulag vorþemaviku þurfa nemendur, sem ætla að vera heima að skrá sig. Ekki er ætlast til að nemendur verði suma daga heima og aðra í skólanum, heldur eiga þeir að velja annað hvort. Þó eru allir velkomnir síðasta daginn í grillveisluna þriðjudaginn 25. maí, jafnt nemendur sem starfsfólk.
Með góðri kveðju, kennarar
Dagskrá Vorþemaviku má nálgast HÉR.
|