Forsíða
Á döfinni
Um skólann
Stefna Stórutjarnaskóla
Um breytt námsmat
Leikskólinn
Grunnskólinn
Tónlistardeild
Foreldrafélagið
 
Námsvísar
Stundaskrár
Skóladagatal
Þróunarstarf
 
Nemendur
Starfsfólk
Matseðill
Grenndarvitund
Umhverfi og lýðheilsa
· Umhverfisnefnd
   ·  Fundarg. 2020-21
   ·  Fundarg. 2019-20
   ·  Fundarg. 2018-19
   ·  Fundarg. 2017-18
   ·  Fundarg. 2016-17
   ·  Fundarg. 2015-16
   ·  Fundarg. 2014-15
   ·  Fundarg. 2013-14
   ·  Fundarg. 2012-13
   ·  Fundarg. 2011-12
   ·  Fundarg. 2010-11
   ·  Fundarg. 2009-10
   ·  Eldri fundargerðir
· Tæmarar
· Menningar- og allsherjarstundir
· Flokkuknarreglur
· Umsókn & skýrsla 2013
· Umsókn & skýrsla 2011
· Fæðukönnun 2012-2013
· Hreyfing-Lestur-Skjár Könnun Feb 2014
 
Greiðslur til skólans
Sundlaug
Símanúmer
Vefpóstur
 
Önnur starfsemi
Eyðublöð


 

Fundargerðir Umhverfisnefndar og fréttir af Grænfánaverkefninu


 

10. maí 2010

20. fundur

 

Mættir: Sigrún,  Aðalheiður, Ósk,  Friðrik, Þuríður og Þórhallur.

1.       Aðalmál  fundarins. Farið yfir punkta sem borist hafa frá nemendum, starfsfólki og foreldrum, og nýtast skulu í „sáttmálann“.

Eftirtalin atriði komu sterkt fram í þessum tillögum:

1.       Nýtni og sparnaður

2.       Sýna ábyrgð í umhverfismálum

3.       Endurvinnsla

4.       Mikilvægi trjáræktar

5.       Fræðsla

6.       Draga úr mengun

7.       Verndun náttúru

8.       Flokkun sorps

Mætti draga saman:

l: Flokkun - endurvinnsla-nýtni-sparnaður.

ll: Ábyrgð-verndun-draga úr mengun.

lll: Fræðsla.

 

2.       Fljótlega mun Sigrún hefja vinnu við skýrslugerð svo að næsta haust verði búið að leggja drög að henni. Með haustinu verður farið enn og aftur yfir gátlista, yfirfarin skrefin 7, sem nú eiga öll að vera komin og lagt af stað í umsóknarferli.

 

 

Þetta var síðasti fundur vetrarins. 

 

Fleira ekki.

 

Þórhallur Bragason

 

19. apríl 2010

19. fundur  

 

Mættir: Sigrún,  Aðalheiður, Ósk,  Líney, Þuríður og Þórhallur.

 

1.       Rætt var um að endursemja bréf sem fór heim til foreldra fyrir páska og setja í Hlaupastelpuna fyrir vorið. Þannig fengju öll heimili á skólasvæðinu fréttir og upplýsingar um starf okkar hér í skólanum á þessu sviði.

 

2.       Sigrún kynnti umsóknareyðublað þar sem sótt er um „Grænfánann“. Samþykkt að Sigrún taki að sér að semja skýrslu um starfið sem unnið hefur verið og mun fylgja umsókninni. Best að þetta gerist nú í vor fyrir skólalok.

 

3.       Tillögur frá námshópum um áherslur í umhverfissáttmálann þurfa að koma sem fyrst, ýta þarf við umsjónarkennurum. Spurning hvernig aðrir hópar skili sínum áherslum.

 

Næsti fundur 03. maí

 

Fleira ekki.

 

 

Þórhallur Bragason

 

 

 

22. mars 2010

18. fundur.

 

 

Mættir: Sigrún, Friðrik, Aðalheiður, Ósk,  Líney, Margrét Snorradóttir, varamaður fyrir foreldra, og Þórhallur.

 

1.       Sigrún ræddi fyrst um umhverfisþingið sem haldið var í síðustu viku. Fundarmenn voru sammála um að þingið hefði tekist mjög vel og verið málefninu til framdráttar og öllum aðstandendum til sóma. Rætt var um flokkunargáminn og hvernig megi koma honum til almennari nota í umhverfinu. Reyna að senda bréf um þetta með nemendum fyrir páska.

 

2.       Rætt um hugmyndir sem komu í hugmyndakassa nemenda. Ein hugmyndin er sú að fjölga útiskóladögum, en margar fleiri komu fram s.s. að rækta blóm, hreinsa læki, taka svæði í fóstur og fl. og fl. Ákv. að vísa þessu til starfsmannafundar.

 

3.       Bréf frá Yrkjusjóði þar sem áréttað var að þetta samstarfsverkefni við Wales um fræskipti er enn lifandi. Einhverjar hindranir eru vegna þess að reglur um innflutning eru strangar í Wales. Frekari frétta er að vænta í haust.

 

4.       Bréf um verkefnið „Varðliðar umhverfisins“. Skilafrestur er 25. mars. Vafasamt um þátttöku héðan af, þó gæti verið að Agnes hefði ræktunarverkefni til að senda í keppnina.

 

5.       Dagur umhverfisins er 25. apríl. Rætt um að gera hann fastann umhverfisdag í skólanum.

 

6.       Bréf frá Orra Páli Jóhannssyni um hgsanlega umsókn skólans um „Grænfánann“ sjálfann. Ekkert til fyrirstöðu að sækja um næsta haust, eins og talað hefur verið um samkvæmt bréfi Orra Páls.

 

Næsti fundur 19. apríl

 

Fleira ekki fært til bókar.

 

 

Þórhallur Bragason

 

18. febrúar 2010

17. fundur

 

Mættir: Sigrún, Aðalheiður, Ósk,  Líney, Þuríður og Þórhallur. Einnig sat Ólafur skólastjóri  fundinn að þessu sinni.

1.       Sigrún lagði fram drög að dagskrá umhverfisþingsins þann 24. febrúar.

·         Skólastjóri setur samkomuna – fjöldasöngur

·         Sigrún kynnir dagskrá og segir frá þeim verkefnum sem eru í gangi

·         Kynning frá nemendum

·         10 mín hlé – kaffi/vatn

·         Hugrún Sigmundsdóttir með erindi

·         10 mín hlé

·         Gunnar Garðarsson frá Akureyri með erindi

·         Ráðstefnuslit  15:10 - Þórhallur

 

2.       Líney lagði fram útprentun af glærum sem nemendur hafa útbúið með sinni kynningu og fór yfir þessar glærur með fundarmönnum.

3.       Rætt aftur og fram um dagskrá þingsins og almennt fyrirkomulag. Ákveðið að bjóða sveitarstjóra, sveitarsjórn og fræðslunefnd sérstaklega. Einhverjar viðbætur þarf í glærum nemenda og Sigrún gerir einnig grein fyrir vissum atriðum í sinni kynningu.

 

.

Fleira ekki bókað

Þórhallur Bragason

 

 

25. janúar 2010

16. fundur

 

Mættir: Sigrún, Aðalheiður, Ósk,  Líney, Friðrik, Þuríður og Þórhallur.

1.       Sigrún gat þess í upphafi að langþráður endurvinnslu- flokkunargámur væri nú kominn á planið. Líneyju falið að hafa forystu fyrir sínu fólki að merkja þennan gám til bráðabirgða. Endanleg merking kemur með vori. Friðrik er búinn að setja lás og byrjaður að fylla í eftir kúnstarinnar reglum.

 

2.       Rætt um umhverfisþingið sem nú hefur verið sett á 24. febrúar (miðvikudag), hefst kl 13:10 og stendur til 15:00. Þrjú dagskráratriði eru þegar ákveðin.

a) Hugrún Sigmundasóttir frá leikskólanum Pálmholti á Akureyri verður með stuttan fyrirlestur um reynslu þaðan.

b) Gunnar Garðarsson frá Endurvinnslunni á Akureyri verður með fróðleik um þá starfsemi alla og um notkun og umgengni við gáminn sem áður var talinn.

c) Fulltrúar nemenda (Líney og nefndin t.d.) segði frá því starfi sem nemendur hafa þegar unnið og einnig frá hugmyndum sem eru til skoðunar.

 

3.       Rætt um að þegar reynsla er komin á notkun gámsins, með stofnuninni og starfsfólki sem vill koma með sorp að heiman verði farið að bjóða fólki í nágrenninu þátttöku.

Fleira ekki bókað

Þórhallur Bragason

 

 

 

11. Janúar 2010

 15. fundur. Mættir: Sigrún, Guðbjörg, Ósk,  Líney, Friðrik, Þuríður og Þórhallur.

 

1.       Sigrún las bréf frá Gunnari Garðarssyni um gáma sem eiga að koma til allra skóla í Þingeyjarsveit. Samkvæmt því bréfi ætti gámurinn að koma í allra síðasta lagi í dag (11. jan) en um hádegi var hann enn ekki sjáanlegur.

 

2.       Rætt var um flokkunina í gáminn þegar hann kemur loks. Sumt er laust í gámnum (pappír, pappi o.fl) en annað sett í poka og síðan í gáminn. Rætt um að halda vel utan um þetta í byrjun en gefa fólki í nágrenninu kost á að koma inn í þessa flokkun. Margt um þetta skrafað.

 

3.       Sigrún minntist á umhverfisþing, t.d. í  febrúar (seinni huta dags). Þetta hefur áður komið til tals og var þá rætt um 8. febrúar. Rætt um að heppilegra sé að stefna frekar á þriðjudaginn 16. febrúar. Á þessu þingi væru auðvitað allir nemendur og starfsfólk, foreldrar og jafnvel fleiri gestir. Stefnt að fá konu frá leikskólanum Pálmholti á Akureyri og jafnvel Gunnar Garðarsson frá frá Endurvinnslunni með fróðleik um „flokkunargáminn“ og fl. tengt endurvinnslu.

 

Fleira ekki bókað

Þórhallur Bragason

 

 

05.12.09

14. fundur

 

Mættir: Sigrún, Aðalheiður, Ósk,  Líney, Friðrik, Þuríður og Þórhallur.
 

1. Sigrún greindi frá því að flokkunargámurinn komi á milli jóla og nýárs .

2. Friðrik greindi frá því að ræstingarkonur kvörtuðu yfir því að pappírsfötur í stofum væru ekki losaðar. Þetta þarf að athuga, gæti verið misjafnt eftir stofum.

3. Nú var haldið áfram að fara yfir gátlistann og því lokið. Greinilega hallar í rétta átt miðað við fyrstu yfirferð í fyrrahaust.

4. Það kom fram að nemendur vinnuskólans hreinsuðu með öllum þjóðvegum á svæðinu sl.  sumar (undir stjórn Aðalheiðar).
 

Áætlað að fyrsti fundur eftir áramót verði 11. janúar.
Fleira ekki
Þórhallur Bragason

 

23.11.09

13. fundur

Mættir: Sigrún, Aðalheiður, Ósk,  Líney, Friðrik og Þórhallur.

 
1. Sigrún segir frá hugmyndum um umhverfisverkefni í samvinnu við skóla í Wales- fræskiptaverkefni-.  Á kennarafundi var samþykkt að þetta gæti hentað eldri nemendum og var Agnes skipuð verkefnisstjóri. Þetta verkefni mun nú vera að fara á undirbúningsstig.
Þá sagði Sigrún frá góðu starfi og hugmyndum bakshóps  nemenda, en þau hafa m.a. sett upp hvatningarskilti hér og hvar, þar sem hvatt er til sparnaðar pappírs. Þá safnaði hópurinn hugmyndum í hugmyndakassa og nú er stefnt að umhverfisþingi í Stórutjarnaskóla fyrir nemendur, starfsfólk og foreldra í febrúar nk.
Enn greindi Sigrún frá samskiptum við sveitarstjóra og fleiri um gámana fyrir endursvinnslusorp. Enn er þetta mál í biðstöðu en þó líklega á einhverri hreyfingu.

 

2. Haldið var áfram að fara yfir gátlistann.
 

Næsti fundur eftir hálfan mánuð  7. desember og það verði síðasti fundur á þessu ári.

  
Fleira ekki
Þórhallur Bragason


 

09.11.09

12. fundur

Mættir: Sigrún, Aðalheiður, Ósk,  Líney (fulltrúi nemenda),  og Þórhallur.
 

Haldið áfram að fara var yfir gátlistann.
Næsti fundur eftir hálfan mánuð 23. nóv.
 

Fleira ekki
Þórhallur Bragason

 

 

26.10.09

11.fundur

Mættir: Sigrún, Friðrik, Líney (fulltrúi nemenda),  Þuríður (fulltrúi foreldra),  Aðalheiður, Ósk og Þórhallur.

Farið var yfir gátlistann sem notaður var í fyrra m.a. til að rifja upp og sjá líka hvað hefði  áunnist.
Næsti fundur eftir hálfan mánuð 9. nóv.

Ritari: Þórhallur Bragason

 

 
12.10.09

10. fundur

Mætt:  Sigrún Jónsdóttir, formaður,  Friðrik Steingrímsson, Óska Helgadóttir, Þuríður Sveinsdóttir, fulltrúi foreldra, Aðalheiður Kjartansdóttir, Ólafur Arngrímsson og Líney Rúnarsdóttir, fulltrúi nemenda.

1.  Sigrún fór yfir umhverfisstefnu skólans eins og hún birtist í skólanámskránni.

2. Fram kom að búið er að kjósa fulltrúa nemenda í umhverfisnefnd, sem og fulltrúa úr hverjum námshópi skólans í bakhóp.

 

3. Fram kom að nú þegar er hafin flokkun pappírs í skólanum (hófst s.l. vetur).  Þá hefur mjólkurumbúðum verið breytt úr fernum í sérstaka  vél sem notar stærri umbúðir og færri.   -  Nú verður lögð áhersla á að fá pappírsgám á staðinn, en sveitarfélagið hefur gefið leyfi fyrir honum.  Gámurinn kemur frá  Endurvinnslunni á Akureyri.  -  Bakhópur þarf að útbúa slagorð og merkingar til að hengja upp í skólanum og ætlað er að minna alla á flokkun og umhverfisverkefnin.

 

4. Næsti fundur verður eftir tvær vikur, 26. október.


Ritari: Ólafur Arngrímsson

 


SMÞMFFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031123
45678910
Ágúst 2022

12. ágú. 2022

Skólasetning Stórutjarnaskóla verður mánudaginn 22. ágúst kl. 17:00


2. jún. 2022

Sumarfrí


2. jún. 2022

Sundlaug og bókasafn


27. maí 2022

Vordagar


18. maí 2022

Í mörgu að snúast hjá elstu nemendunum


16. maí 2022

Afmælishátíð


16. maí 2022

Umhverfis- og lýðheilsuþing og vortónleikar


22. apr. 2022

Gleðilegt sumar