Farsæld barna

Farsæld barna

Á Íslandi hafa ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna (nr. 86/2021) tekið gildi. Þessi lög varða öll börn og ungmenni á Íslandi frá 0 - 18 ára aldurs.

Meginmarkmið laganna er að búa til umgjörð sem stuðlar að því að börn og foreldrar sem á þurfa að halda hafi aðgang að samþættri þjónustu við hæfi án hindrana. Samþætt þjónustu í þágu farsældar barns er skipulögð og samfelld og hefur það markmið að skapa heildarsýn og ramma um þau þjónustukerfi sem skipta mestu máli fyrir farsæld barna.

Foreldrar/forráðamenn og/eða nemendur eru beðin um að hafa samband við Elínu Friðriksdóttur tengilið farsældar, umsjónakennara viðkomandi nemanda eða skólastjóra, hafi þau spurningu varðandi Farsæld barna eða tilefni til að ætla að þau þurfi á þjónustunni að halda.

Starfsfólk skólans mun einnig hafa samband við foreldra/forráðamenn telji það að nemandi þurfi á þjónustunni að halda.

Myndband sem lýsir í stuttu máli því sem lögin innibera.