Árshátíð Stórutjarnaskóla er í kvöld

Allt klárt fyrir árshátíð Stórutjarnaskóla! 🎭

Hér má sjá myndir frá aðalæfingunni í morgun. Nemendur, kennarar og annað starfsfólk lögðu sig öll fram og stóðu sig frábærlega. Nú er allt til reiðu og við hlökkum til að sýna ykkur afraksturinn í kvöld!

Árshátíðin hefst kl. 17:00 og á svið verða sett verkin Emil í Kattholti og Ást á heimavist. Á eftir bíða veitingar, samvera og ball!

Aðgangseyrir er 3.000 krónur og fyrir það fá gestir skemmtun, mat, kaffi, súkkulaði og bal, aldeilis góð kvöldstund í boði. Frítt er fyrir börn á leik- og grunnskólaaldri. Allur ágóði rennur í ferðasjóð nemenda skólans.

Munið að enginn posi er á staðnum.

Endilega fjölmennið, takið með ykkur fjölskyldu og vini og njótið kvöldsins með okkur. Sýnum nemendum okkar stuðning og fyllum salinn!

Koma svo — sjáumst í kvöld! ❤️


Árshátíð Stórutjarnaskóla 2026