Dagur leikskólans 6. febrúar

Í vikunni hafa börnin verið að lita og teikna myndir í tilefni dagsins, en 6. febrúar, er Dagur leikskólans. Þessi dagur er sérstaklega tileinkaður hinu dýrmæta og öfluga starfi sem fer fram daglega innan veggja leikskóla.

Í dag var svo haldið í gönguferð um nágrennið þar sem börnin stungu listaverkum í póstkassana hjá nágrönnum okkar, aftan á listaverkin voru settar kveðjur frá leikskólanum. Markmið ferðarinnar er að dreifa gleði til fólksins í kringum okkur. Þessi tenging við nærumhverfið er dýrmæt og kennir börnunum að lítil, jákvæð verk geta haft mikil og góð áhrif á líf annarra. Nágrannarnir voru ekki þeir einu sem fengu að njóta góðs af sköpunargleðinni, því skólabílstjórarnir okkar fá líka sérstaka kveðju í tilefni dagsins.

Smá listaverkasýning hefur verið sett upp á ganginum við inngang skólans með fjölbreyttum verkefnum eftir börnin. Við erum ákaflega stolt af okkar nemendum og starfsfólki en Dagur leikskólans minnir okkur á að með jákvæðni og samvinnu höfum við áhrif á aðra og við skiptum máli fyrir nærsamfélagið okkar.

Gaman er að segja frá því að á síðasta ári gaf Kvenfélag Fnóskdæla leikskólanum tvenna innanstokksmuni, bóka- leikfangakassa, sem munu nýtast okkur í starfi. Við viljum láta gleðina skína í öllu sem við gerum og viljum gera okkar besta til að halda áfram því starfi sem fram fer hjá okkur og efla frekar með samvinnu og velvilja nærsamfélagsins. Áfram leikskólinn og til hamingju með daginn!