Í fyrsta skipti fóru nemendur frá okkur til höfuðborgarinnar á Samfés. Það fóru 7 nemendur úr 8., 9. og 10 bekk, umsjónarmaður félagsmiðstöðva í Þingeyjarsveit fór með þeim í ferðina.
Samfés eru Landssamtök félagsmiðstöðva og ungmennahúsa á Íslandi. Samfés vinnur að því að auka samskipti og samvinnu félagsmiðstöðva og ungmennahúsa á landinu og stuðla að eflingu fagmenntunar starfsfólks. Í starfi Samfés er lögð mikil áhersla á að ungt fólk hafi tækifæri til að koma sínum sjónarmiðum á framfæri og að rödd þeirra berist ráðamönnum. Hér má kynna sér nánar starfsemi og markmið Samfés.
En aftur að nemendum okkar. Þau voru ljómandi ánægð með þessa ferð og skirfuðu dagbók um ferðina, við gefum þeim orðið.
„Á föstudeginum fór ég í skólann. Eftir morgunmat þá fórum við 8 til 10 bekkur út í rútu og fórum til Reykjavíkur. Við stoppuðum fyrst hjá Valsárskóla og sóttum krakkana þar, svo stoppuðum við í Varmahlíð í korter og keyptum okkur að borða og svo héldum við áfram. Svo stoppuðum við í Staðarskála í hálftíma og þar pöntuðum við okkur franskar og eitthvað þannig. Við vorum komin til Reykjavíkur um sirka 4 og þá fórum við á félagsmiðstöð sem er í Kópavogi og þar gistu flestir krakkarnir."
„Þar spiluðum við strákarnir FIFA í playstation 5. Það kvöld fórum við upp í rútuna og sátum í umferð í u.þ.b. 40 mínútur áður en við komumst að Laugardalshöllinni þar var stórt ball þar sem voru u.þ.b. 4500 unglingar. Þar var mjög gaman og spiluðu margir frægir tónlistarmenn fagra tóna fyrir okkur unglingana t.d. Daniil, Aron Can, XXX Rottweiler hundar og Auddi og Steindi."
„Þegar við vorum kominn inn þurftum við að sína armböndin sem við fengum í rútunni á leiðinni. Það voru mjög margir þarna en þetta var mjög gaman. Þegar ballið var búið klukkan 11:45 þá fórum við með rútunni til baka á gististaðinn." „Þar sem við spiluðum FIFA og fengum okkur pizzu frá Dominos."
„Á laugardeginum klukkan 11 fórum við með hópnum í Kringluna að fá okkur að borða. Ég fékk mér pítsu og brauðstöng á SBARRO. Þegar við vorum búin að borða þá máttum við fara í búðir af því við áttum að verða komin út í rútuna klukkan 1. þegar við vorum komin út í rútuna þá fórum við í Laugardalshöllina þar sem söngvakeppnin var haldin þeir sem vildu ekki fara á söngvarkeppnina máttu gera eitthvað annað við ákvöðum að fara í húsdýragarðinn en svo vildu Tindra og Begga fara á söngkeppnina þannig við hlupum aftur í laugardagshöllinna til að komast á hana við náðum á hana og hún var ágætt." „Margir keppendur frá félagsmiðstöðvum frá öllu landinu sungu og spiluðu lög og sumir sungu lög sem þau skrifuðu sjálf."
„Hún var búin á milli 4 og 5 og við lögum beint af stað heim aftur. Við stoppuðum fyrst í Borgarnesi í 15 mínútur og svo í Blönduósi í 30 mínútu. Við stoppuðum svo í Valsárskóla þar sem krakkar þaðan fóru. Svo stoppaði rútan hjá gatnamótunum heima hjá mér."
Af þessum dagbókarskrifum má sjá að nemendur voru ánægð með þessa ferð og það sem boðið var uppá. Við reiknum með að ferð á Samfés verði árlegur viðburður hér eftir.