Hefðbundið skólastarf komið af stað í Stórutjarnaskóla

Nú er skólastarfið í Stórutjarnaskóla komið af stað af fullum krafti. Í morgun unnu nemendur í 1.–4. bekk með speglun og samhverfuása, þar sem kennarinn þeirra, Birna Friðriks, leiðbeindi þeim og útskýrði verkefnið.

Börnin sýndu mikla vinnusemi, einbeitingu og sköpunargleði við að raða kubbum og öðrum efniviði í samhverf mynstur. Útkoman er bæði litrík, hugvitssöm og einstaklega falleg.