Hringrásarmarkaður 13. maí frá kl. 12:30 - 14:00

Hringrásarmarkaður 13. maí frá kl. 12:30 - 14:00

Hringrásarmarkaður

Nú er komið að því. Miðvikudaginn 13. maí verður haldinn hringrásarmarkaður í Stórutjarnaskóla frá kl. 12:30 til 14:00.

Við viljum ekki að gamlir en nýtilegir munir sem til eru hér í skólanum endi í ruslagámi og viljum því bjóða þá til sölu. Þetta eru munir af ýmsu tagi svo sem nokkur stykki af sjöunni sem er klassísk dönsk hönnun, lítið notuð sængur og koddar, nýleg og fín einbreið rúm af herbergjunum sem fara undir nýja leikskólann, hillur, kertastjakar, lampar, myndarammar og ýmislegt fleira, að ógleymdu fornfálegu fótstignu orgeli. Ágóði af sölu þessara muna fer í sjóð til að byggja sparkvöll við skólann.

Einnig munu nokkrir nemendur selja eiguleg föt sem þeir eru vaxnir upp úr og mun ágóðinn af þeirri sölu renna beint til þeirra sjálfra. Þannig vekjum við þau til umhugsunar um að töluverð verðmæti liggja í notuðum vel með förnum fatnaði. Við bendum á að þar er hægt að gera góð kaup og úrvalið er best í stærðum sem henta yngsta stigi grunnskólans en þó eru minni og stærri stærðir einnig í boði. 

Við hvetjum alla til að skoða myndirnar sem hér eru í albúmum og mæta svo á miðvikudaginn og gera góða kaup. Sjón er sögu ríkari!

Hér má finna myndaalbúm með söluvarningi frá Stórutjarnaskóla. Því miður gekk brösulega að setja inn verð á þessar myndir en um að gera að bjóða í eða senda fyrirspurnir til Birnu Davíðs, Birnu Friðriks eða Maríu.

Hér má finna nokkur albúm með fötum og skóm frá nemendum.

Albúm 1

Albúm 2

Albúm 3

Albúm 4

Albúm 5