Stórutjarnaskóli í Þingeyjarsveit auglýsir eftir leikskólakennara í afleysingu til 31. júlí 2025 í 80-100% starf sem:
- ber virðingu fyrir börnum og hefur áhuga á að starfa með þeim
- hefur góða samskiptahæfni og metnað til að takast á við fjölbreytt verkefni með nemendum.
- er jákvæður og sveigjanlegur
- er sjálfstæður í vinnubrögðum og sýnir frumkvæði
- er samstarfsfús og lausnamiðaður
- er með menntun sem nýtist í starfi
- getur hafið störf sem fyrst
Stórutjarnaskóli stendur í Ljósavatnsskarði og er samrekinn leik- grunn- og tónlistarskóli með um 40 nemendur frá eins árs til 16 ára aldurs. Öll starfsemi skólans er í sama húsnæði. Skólinn er að innleiða Jákvæðan aga, er Grænfánaskóli og Heilsueflandi skóli. Lögð er áhersla á að búa nemendum og starfsfólki fjölbreytt leik- náms- og starfsumhverfi sem eflir alhliða heilsu og þroska. Mikið samstarf er milli námshópa innan skólans og er skólinn í góðu samstarfi við nágrannaskóla sína og samfélagið í sveitinni.
Umsóknarfrestur er til 20. desember 2024.
Ef enginn fagmenntaður sækir um verða aðrar umsóknir skoðaðar.
Áhugasamir hvattir til að hafa samband í síma 4643220/8483547 eða í gegnum netfangið birnada@storutjarnaskoli.is
Umsóknir skulu sendar á netfangið birnada@storutjarnaskoli.is
Umsókninni þarf að fylgja ferilskrá og afrit af leyfisbréfi. Gerðar eru kröfur um hreint sakavottorð.