Matráður

Matráður í 80% stöðu

Helstu viðfangsefni og ábyrgð

  • hefur yfirumsjón með starfsemi í eldhúsi og annast almenn eldhússtörf
  • annast matseld í samræmi við ráðleggingar landlæknis um mataræði barna í leik- og grunnskólum
  • er í samstarfi við matráð Þingeyjarskóla varðandi innkaup matvæla og frágang og geymslu á þeim
  • annast tilfallandi önnur störf s.s. í tengslum við fundi, aðrar samkomur og uppbrotsdaga

Hæfnikröfur

  • matartækninám
  • þarf að hafa góða samskiptahæfni og kappkosta að sýna nemendum og samstarfsfólki virðingu í hvívetna
  • þekking/reynsla af daglegum rekstri mötuneytis
  • þekking/reynsla af næringarfræði, sérfæði, gæðum og fjölbreytileika matar er nauðsynleg

Stórutjarnaskóli stendur í Ljósavatnsskarði og er samrekinn leik- grunn- og tónlistarskóli með um 45 nemendur frá eins árs til 16 ára aldurs. Öll starfsemi skólans er í sama húsnæði. Skólinn er Grænfánaskóli og Heilsueflandiskóli og er að innleiða teymiskennslu. Lögð er áhersla á að búa nemendum og starfsfólki fjölbreytt leik- náms- og starfsumhverfi sem eflir alhliða heilsu og þroska. Mikið samstarf er milli námshópa innan skólans og er skólinn í góðu samstarfi við nágrannaskóla sína og samfélagið í sveitinni.

Stöðurnar eru lausar frá og með 15. ágúst 2025.

Umsóknarfrestur er til 20. júní 2025.

Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband í síma 4643220/8483547 eða í gegnum netfangið birnada@storutjarnaskoli.is

Umsóknir skulu sendar á netfangið birnada@storutjarnaskoli.is

Umsókninni þarf að fylgja ferilskrá og afrit af leyfisbréfi