Miðvikudaginn 11. febrúar var menningarstund í skólanum á vegum tónlistardeildarinnar. Dagskráin bauð upp á fjölbreytt tónlistaratriði sem gestir, nemendur og starfsfólk hlýddu á. Að dagskrá lokinni var boðið upp á sólarpönnukökur. Það var því miður skýjað þennan dag en miðað er við að sólin láti sjá sig 11. febrúar eftir fjarveru í nærri þrjá mánuði. Að þessu sinni sáu stúlkur í 8. til 10. bekk um að steikja pönnukökurnar en sú hugmynd kviknaði í matreiðslutíma hjá Nönnu föstudaginn áður. Dagmar ásamt nemendum sáu svo um að setja sultu og rjóma í pönnsurnar áður en þær voru bornar fram fyrir gesti. Þessi viðburður var liður í því að fagna hækkandi sól og efla samfélagið innan skólans. Mæting var góð og nýttu viðstaddir tækifærið til að eiga samverustund yfir veitingunum. Skipulag og framkvæmd tókst vel í alla staði og þökkum við nemendum kærlega fyrir þeirra framlag. BD