Mörg lítil augnablik geta haft mikil áhrif á málþroska barna

Góður málþroski er mikilvægur grunnur að læsi, námi og samskiptum barna í Stórutjarnaskóla. Við getum öll stutt við hann í daglegu lífi með því að spjalla við börnin, hlusta, lesa saman og syngja. Litlu stundirnar skipta máli og mikilvægt er að gefa börnum tíma til að tjá sig og velta fyrir sér orðum og hugtökum.

Leikskólarnir Völlur og Akur í Reykjanesbæ hafa, með styrk frá Sprotasjóði, unnið sex stutt fræðslumyndbönd um málþroska ungra barna. Þau fjalla um orðaforða, tvítyngi, söng, hreyfingu, snuðnotkun og skjánotkun og eru á íslensku með texta á íslensku, ensku og pólsku.

Við hvetjum foreldra og forsjáraðila til að skoða myndböndin og nýta fræðsluna í samveru með börnunum

Foreldrafræðsla - Reykjanesbær