Í ár var öskudagurinn haldinn með nýju sniði. Nemendur leikskólans fóru í salinn kl. 9:30 þar sem var dansað við ýmis skemmtileg lög. Klukkan 10:00 mætti svo grunnskólinn í salinn. Þá var farið í hina árlegu Limbó keppni, þar sem keppt var í tveimur aldursflokkum. Að Limbókeppninni lokinni var marserað þar sem allir tóku þátt, þar sem eldri og yngri pöruðust saman í dansinum. Kötturinn var sleginn úr tunnunni. Í ár voru 3 tunnur og því þrír tunnukóngar, 5 ára og yngstastig, miðstig og svo elstastig. Fengu allir glaðning úr tunnunum eftir að kötturinn hafði sleginn úr þeim. Að lokum var svo farið í þrautaleiki fram að hádegismat. Eftir hádegismat saumuðu yngsta- og miðstig öskudagspoka, meðan elstastig fór í Kahoot. Eftir að saumaskapnum lauk bættust bæði mið- og yngstastig við í Kahoot. Deginum lauk svo að vanda úti á bílaplani þar sem sungið er fyrir skólabílstjórana.
Frábær dagur sem tókst mjög vel. Yndislegt þegar allir taka þátt, allir aldurshópar blandast í gleðinni ásamt starfsfólki.