Skólaslit 2. júní 2026

Stórutjarnaskóla var slitið við hátíðlega athöfn síðastliðinn þriðjudag.

Hörður Smári Garðarsson útskriftarnemandi úr 10. bekk hóf athöfnina á því að leika fyrsta þátt úr Tunglskins sónötu eftir Ludwig Van Beethoven.

Fjórir frábærir nemendur útskrifuðust úr 10. bekk og þrír úr leikskóla. Útskriftarnemendur fengu viðurkenningarskjöl og blóm að því tilefni.

Allir nemendur grunnskólans fengu sína vitnisburði og tóku við þeim úr hendi umsjónarkennara sinna. Eins og hefð er fyrir færðu kvenfélögin á skólasvæðinu útskriftarnemum úr 10. bekk bókagjöf.

Tveir starfsmenn sem starfað hafa lengi við skólann. Guðbjörg Kristín Jónsdóttir sem unnið hefur í yfir 20 ár, fyrst í leikskólanum svo í eldhúsinu og að lokum sem skólaliði. Malla, María Sigurðardóttir starfaði sem þorskaþjálfi í 15 ár. Þeim voru þökkuð vel unnin störf með gjöf og blómum.

Gerður sveitastjóri kom og færði Birnu skólastjóra kveðjugjöf frá sveitarfélaginu með þökkum fyrir vel unnin störf síðast liðin 17 ár, þar sem hún starfaði fyrst sem leikskólakennari, svo umsjónarkennari yngsta stigs og að lokum skólastjóri síðastliðin 5 ár.

Starfsfólkið kom svo allt saman uppá sviði og færði Birnu kveðjugjöf og frumsamið ljóð með kærri þökk fyrir samstarf og samveru hér við skólann.

Að lokum þakkaði Birna fyrir sig og sleit sínu 5. og síðasta skólaári við Stórutjarnaskóla.