Vortónleikar og bókaútgáfa

Það var stór dagur hjá okkur á síðasta miðvikudag, sem var bjartur og sólríkur.

Vortónleikar

Vortónleikar nemenda Stórutjarnaskóla voru haldnir í sal skólans, þar komu fram nemendur tónlistardeildar ásamt elstu nemendum leikskóladeildar. Tónleikarnir voru fjölbreyttir og skemmtilegir. Stóðu nemendur sig mjög vel við tónlistarflutninginn og framkomu alla og voru sjálfum sér og skólanum til mikils sóma. Húsfyllir var á tónleikunum og tónleikagestir ánægðir og hrósuðu okkar ungu listamönnum í hástert. Reyndar tóku allir nemendur grunnskólans þátt í tónlistarflutningnum, því þeir fáu nemendur sem ekki eru í tónlistarnámi spiluðu í hljómsveitunum og/eða sungu í kórnum. Marika og Ármann héldu utan um tónleikana, en þau halda uppi glæsilegu tónlistarstarfi við skólann. Það sýnir sig í fjölbreyttum verkefnum og þeim fjölda sem stundar hjá þeim tónlistarnám, en nær allir nemendur skólans eru skráðir í tónlistardeild.

Bókaútgáfa

Á þessum fallega degi voru það ekki eingöngu tónleikarnir sem börnin hlökkuðu til, því nemendur 5. og 6. bekkjar fengu heimsókn frá Barnadeild Sjúkrahússins á Akureyri. Þar var mættur Gestur Guðrúnarson og tók hann við peningagjöf frá börnunum, sem söfnuðu 200.000,- með útgáfu á bókum sem þau skrifuðu sjálf og unnu frá a – ö eins og þar stendur. Börnin tóku þátt í samvinnuverkefni fjögurra skóla á Norðurlandi í vetur, þar sem þau skrifuðu ekki bara bækurnar, þau stofnuðu einnig bókaforlag fyrir útgáfuna og útbjuggu merki forlagsins. Verkefninu lauk með Bókmenntahátíð barnanna í félagsheimilinu Laugaborg þar sem þau seldu afraksturinn af verkinu. Anna Karen og Ósk voru nemendum til halds og trausts við vinnslu bókanna, en rithöfundarnir Berglind Erna Tryggvadóttir og Þórunn Rakel Gylfadóttir höfðu yfirumsjón með verkefninu, sem hlaut styrk úr Sprotasjóði Rannís. Gestur Guðrúnarson þakkaði fyrir góða gjöf og þann hlýhug sem henni fylgdi.

Að lokinni dagskrá biðu veitingar í borðsal þar sem nemendur elsta stigs seldu kaffi og meðlæti til styrktar ferðasjóði nemenda.

Hér eru myndir frá þessum hátíðardegi