Laus staða matráðs

Umsóknarfrestur til 7. júlí

Erasmus+

Nemendur og starfsfólk Stórutjarnaskóla fengu nýverið styrk úr Erasmus+ áætlun Evrópusambandsins til að vinna að alþjóðlegu ungmennaverkefni sem ber nafnið „We – Við – Meie“. Verkefnið er leitt af Sigríði Árdal og Marika Alavere í samstarfi við nemendur í 8.–10. bekk, og í september mun hópurinn taka á móti tíu ungmennum og kennurum þeirra frá Eistlandi. Meginhluti verkefnavinnunnar fer fram í Stórutjarnaskóla, en einnig er fjölbreytt dagskrá fyrirhuguð þar sem þátttakendur munu meðal annars fara í vettvangsferðir um sveitarfélagið og kynnast náttúru og menningu Þingeyjarsveitar. Markmið verkefnisins eru meðal annars að efla sjálfstraust og leiðtogahæfni ungmenna, vekja þau til umhugsunar um sjálfbæran lífsstíl og framtíð jarðar og stuðla að alþjóðlegri samvinnu og vináttu. Þessi sami hópur vann að Erasmus+ verkefni í september síðastliðnum í Eistlandi sem hét Eye-Ég-Mina og er nýja verkefnið framhald af því verkefni. Má því búast við mikilli gleði í haust þegar ungmennin hittast aftur. Við hlökkum til að fylgjast með verkefninu, en því lýkur með opnum viðburði í Stórutjarnaskóla þar sem afrakstur vinnunnar verður kynntur.

Matráður

Laus staða í Stórutjarnaskóla í Þingeyjarsveit

Sundlaug Stórutjarnaskóla

Sundlaug Stórutjarnaskóla er lokuð frá 2. júní til 15. ágúst.