Þorrablót og dans 29. janúar

Þorrablót skólans fór fram þann 29. janúar og tókst ljómandi vel. Nemendur voru mjög virkir í undirbúningshópum og unnu verk sín af miklum dugnaði. Skemmtiatriði nemenda tókust vel voru þeim til sóma. Starfsfólk skólans var sömuleiðis öflugt við að leiðbeina og taka virkan þátt í hátíðinni. Skreytingar í salnum voru flottar og hlaðborðið var glæsilegt með ljúffengum þorramat. Það var sérstaklega ánægjulegt að sjá hversu góð mæting var hjá foreldrum sem deildu þessari stund með okkur. Þorrablótið endaði svo með dansi, en Kara Arngrímsdóttir danskennari kenndi nemendum dans þessa viku og var byrjað á að sýna nokkra dansa. Foreldrum var svo boðið að vera með í dansi og var góð þátttaka og mikil gleði þar sem nemendur, foreldrar og starfsfólk dönsuðu saman. Virkilega vel heppnaður og ánægjulegur dagur í skólanum okkar.